17. júlí 2023 - niðurstöður íbúafundar og vefkönnunar birtar
24. júní 2023 - Sögutorgin á Brákarhátíð
14. júní 2023 - vinnufundur með íbúum
21. maí 2023 - vefkönnun
16. maí 2023 - íbúafundur
Á Brákarhátið 2023 var opnuð sýning á Sögutorgunum í Tónlistarskóla Borgarfjarðar. Af því tilefni var verkefnið kynnt gestum og gangandi auk þess sem boðið var upp á að mála bílaplanið framan við Tónlistarskólann. Margir gáfu sér tíma til að taka þátt og marka sín spor.
Fyrsti vinnufundurinn með íbúum var haldinn í Tónlistarskóla Borgarfjarðar 14. júní 2023. Rætt var um frumniðurstöður vefkönnunarinnar sem var í gangi 21. maí til 5. júní. Niðurstöður verða birtar fljótlega.
Taktu þátt í vefkönnun varðandi torgin tvö og ásinn milli þeirra. Smelltu HÉRNA til að taka þátt. Könnunin verður opin til og með 5. júní nk. Niðurstöður verða birtar fljótlega.
Fyrsti íbúafundurinn var haldinn í Hjálmakletti þriðjudaginn 16. maí 2023. Á fundinum voru niðurstöður rannsóknarinnar Borgarnes í þátíð, nútíð og framtíð kynntar auk þess sem haldin var vinnustofa í tengslum við gamla bæinn í Borgarnesi. Niðurstöðurnar verða birtar fljótlega.